„Við erum að rannsaka hvernig gervigreind kemur inn í samfélagið. Við erum að skoða þær hugmyndir og þá orðræðu sem verður til þegar við förum að nota gervigreind í daglegu lífi okkar. Við notum hljóðfæri og tónlist sem vettvang til að rannsaka þetta. Við erum sem manneskjur mjög tengdar tónlist og hljóðfærum.” Þetta segir Þórhallur Magnússon, rannsóknaprófessor í í tilraunakenndum hugvísindum við HÍ, en verkefni sem hann leiðir hlaut tveggja milljóna evra ERC-styrk. Rannsóknin sem Þórhallur leiðir kallast Intelligent Instruments og spannar svið tónlistar, gervigreindar og hugvísinda samhliða því sem hún skapar alþjóðlegan vettvang til þverfaglegs samstarfs milli háskóla og menningarstofnana.
Негізгі бет Gervigreindin í ómi hljóðfæranna
Пікірлер