Græni Hatturinn 8.10.16 Íslensk útgáfa David Bowie - Starman
Ég skrapp í Bónus til að kaupa bóg,
ég bara viss’ ekki hvað væri nóg,
ég átti kartöflur og kannski rauðrófur og maís.
Eftir talsvert langa leit
ég legg upp laupa því ég fokking veit
ekki hvar kælirinn og lambakjötið er.
Finn ég starfsmann? Veit hann hvar ég er?
Og veit hann að í búðinni
er bjáni eins og ég?
Vantar starfsmann! Ég veit ei hvar hann er!
Ég vildi að hann kæmi og segði:
„Góðan daginn, get ég aðstoðað?
Get ég hjálpað yður?
Get ég bjargað yður,
og bent þér suðr'á bóginn?“
Ég varð að hringja og ég hringdi í þig,
ég þurfti einhvern til að hugga mig,
því svona búðarferðir ríða mér alveg á slig.
Ég stend við rekkann með stífar tær,
ég stirðna allur upp um hupp og lær.
Ég hefði betur sent þig út í búð í gær.
Finn ég starfsmann? Veit hann hvar ég er?
Og veit hann að í búðinni
er bjáni eins og ég?
Vantar starfsmann! Ég veit ei hvar hann er!
Ég vildi að hann kæmi og segði:
„Góðan daginn, get ég aðstoðað?
Get ég hjálpað yður?
Get ég bjargað yður,
og bent þér suðr'á bóginn.“
Starfsmann! Veit hann hvar ég er?
Og veit hann að við rekkann
stendur rati eins og ég?
Vantar starfsmann! Ég veit ei hvar hann er!
Ég vildi að hann kæmi og legði
lófann yfir öxlina á mér ...
„Get ég hjálpað yður?
Get ég bjargað yður?“
... og rétti lambabóginn.
Негізгі бет Ljótu Hálfvitarnir - Vantar Starfsman
Пікірлер: 1