Kynningarmyndband fyrir Vorönn 2017
Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í pródúseringu, hljóðhönnun, upptökum og hljóðblöndun með áherslur í samningu á elektrónískri tónlist.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir.
Námskeiðið skiptist í verklega og bóklega tíma. Í verklegum tímum er kennd meðferð hugbúnaðar til tónlistarsköpunnar (og hljóðhönnunar) ásamt tækjum og tólum. Nemendur notast við tónlistarforritin Ableton Live, Bitwig Studio og Pro Tools. Í bóklegum tímum er farið yfir þróun raf- og tölvutónlistar. Einnig munu íslenskir raftónlistarmenn og pródúserar halda fyrirlestra í bóklegum hluta námsins.
Á meðan á námskeiðinu stendur vinna nemendur að eigin EP-plötu með leiðsögn kennara en platan er einnig lokaverkefni námsins. Öll kennsla fer fram í Hljóðheimum og Fjölbrautarskólanum við Ármúla.
Негізгі бет Raftónlist - Vorönn 2017
Пікірлер